Foreldrajafnrétti

"Markmið foreldrajafnréttis er að knýja Ríkisvaldið til að leggja fram nýtt frumvarp til laga um réttindi barna til að umgangast báða foreldra sína jafnt. Í dag eru réttindi þeirra fótum troðin af úr sér gengnum lögum sem eru úr takti við það sem gerist í nágrannalöndum okkar. Kerfið vinnur móti hagsmunum barna með aldagömlum viðhorfum, vinnubrögðum og úr sér gengnum reglum þar sem algjörlega er horft fram hjá mörgum rannsóknum og langri reynslu annara þjóða. Réttindabrotin á Íslandi eru bæði mörg, slæm og til lítillar fyrirmyndar fyrir metnaðarfulla þjóð. Ástandið í þjóðfélaginu á komandi ári mun reyna á foreldra og efalaust munu skilnaðir aukast. Komum í veg fyrir að deilur magnist við skilnað. Virðum réttindi barna. Breytum lögum sem fyrst.

Margar hendur vinna létt verk og börn þessa lands þurfa á ykkur að halda.
Það hefur aldrei verið eins mikilvægt og nú að standa vörð um réttindi barna landsins!!!

- Kynnið ykkur málefnið á www.foreldrajafnrétti.is

- facebook http://www.new.facebook.com/groups/edit.php?members&gid=38732926719#/group.php?gid=38732926719

Takk fyrir stuðninginn.
f.h foreldrajafnréttis. Birgir Grímsson"

 

 


Olíuhreynsistöð? Vestfirðingar vaknið!

Kæru vestfirðingar!

 Í dag misstu þið ein af ykkar merkustu mönnum, Sigurjón Jónason bónda frá Lokinhömrum í Arnarfirði. Hann hafði búið við einstaka búskaparhætti og hélt flestu óbreyttu í um heila öld. 

Fyrir ekki svo all löngu féll annar af ykkar hetjum Elís Kjaran.

Nú er svo komið að fólksfjölgun hefur verið eitthver á norðurlandi og söm við sig á suðurlandi, á sama tíma eyðast vestfirðir upp, þeir eru ekki einusinni partur af hringvegi landsins!

Og afhverju ekki? 

Á vestfjörðum, inn í Arnarfirði er Bíldudalur. Kaupstaður sem maður skammast sín að renna í gegn í dag. Þessi forni kaupstaður bjó eitt sinn svo vel að, að sjálfur hafði hann sinn eigin gjaldmiðil. Risavaxinn útgerð var þaðan og sigld til framandi landa. Stærri skip lágu fyrir utan hafnirnar og menn máttu halda að hér væru þeir komnir á höfuðstað norðursins!

Dýrafjörður og Arnarfjörður, fallegustu firðir landsins eru ekki sjón að sjá í dag. Þeir báru áður stolt Íslands og voru landsins aðalsmerki. Ekki furða að tveir forsetar lýðveldisins koma frá sithvorum firðinum!

Vita vestfirðingar ekki hvað þeir sitja á? Náttúrufegurð sem á sér hvergi líkan í allri veröldinni! Ótrúlegustu fjallvegir landsins, gönguleiðir á heimsmælikvarða, veðurblíðu í sumartímann, fjallgarða sem hvergi annarstaðar eru eins tignarlegir og ógurlegir og þar og svo sagan.

Ég hef heyrt af því, að vestfirðingar gæli við hugmyndir að lyfta upp fornaldasögu sinni, sögu sem gerðist á víkingaöld. Flott mál, en hvað með sögu síðustu og þar síðustu aldar. Blómatíma vestfjarða!

Afhverju koma útlendingar til að sjá Geysi, Gullfoss og Þingvelli? Markaðsetning og svo eru þeir einfaldlega keyrðir þangað!

Nú þarf bara að setja upp almennilega myndasöfn, videó, endurbyggja gömul hús, vernda eyðibýlin, setja upp snyrtiaðstöður. Gera þetta almennilegt. Það eru peningar á vestfjörðum, menn sytja á þeim.

Ég er hálfur vestfirðingur, mín ætt er þaðan og sjálfur hef ég eytt 1/3 af minni ævi þar. Nú er um að gera að vestfirðingar vakni, opni augun sín fyrir þeim fjarsjóð sem þeir liggja á og byrji að hala inn fjármagn. Ekki bara frá ótakmörkuðum fjölda túrista heldur líka markaðsetja ferðir fyrir Íslendinga sem svo margir eiga ættir að rekja vestur.

Gerum auka beygju á þjóðveginn! Sjálfur hef ég svo ótal hugmyndir um uppbyggingu á vestfjörðum en er ekki búsettur þar né þekki nægilega vel til sögunar, hvað þá um þá sem búa þar, þekkja ættfræði og sögulegar staðreyndir. 

Nú er tíminn fyrir vestrið! 

 

Áhugasömum er bent á http://muggur37.blog.is 


9 mánuðum síðar


Já kæru Íslendingar.

Nú hafa liðið 9 mánuðir síðan ég skrifaði inn síðustu færslu. Dæmalaust að stjórnvöld hafi ekki séð fyrir neitt þó að ég, heimskur borgari, hafi fyrir löngu reynt að vekja menn til lífsins og als ekki verið einn á ferð.

Nú kannast að sjálfsögðu engin við ábyrgð, þó bankað hafi verið á allar læstar dyr og enginn lokið upp. Nú ætla ráðamenn þjóðarinnar að bíða eftir "könnuninni" (orð Össurar í Mannamáli) til þess að sjá hvort eitthver fái högg á fingur. Ég veit nú ekki betur en þegar lögmenn eða prestar eða lögreglumenn liggja undir alvarlegum grun um brot í starfi, að þeir séu látnir setjast á varamannabekkinn um leið þar til úr verður skorið hvað gerðist. En þetta á ekki við yfirmenn þjóðarinnar, þeir eru jú stikkfrí. Þegar virkilega á reynir hvort þeir einstaklingar sem bera völdin sýni ábyrgð að fullu, eins og t.d. að stíga niður í árferði sem þessu, þá gerist ekkert. Að sýna að maður kunni að fara með völd hlýtur að opinberast best núna, ráðamenn þjóðarinnar bera einir þau völd að stíga til hliðar, en kjósa að gera það ekki. Alvarleg áminning fyrir okkur þjóðina, sem ég ætla að vona við tökum þetta eina skiptið.

Munið! þessa erfiðleika var farið að sjá til í upphafi þessa árs, ég ætla ekki að láta stinga ofaní mig í þetta skiptið, ég bað aðeins um vakningu, en ekkert gerðist, nú ætlar þetta sama fólk að fría sig undan ábyrgð. 

Áfram Ísland! 


Íslenskur efnahagur er að myrða börnin sín

Ég lét bíða lengi eftir nærst færslu, en það hefur verið mikið að gera.

Lítið hefur breyst til góða ef eitthvað. Leigan er sú sama, 90.000 fyrir rúma 60 fermetra, afborguninn af bílaláninu hefur hækkað, við fengum loks leyfi til að sameina skuldabréfin okkar í eitt skuldabréf, Landsbankanum var það lífsins ómögulegt að framkvæma það þó hann vildi ólmur fá skuldabréfin hjá maka mínum yfir frá Kaupþingi. Að lokum var það Sparisjóðurinn sem aðstoðaði okkur af heilum huga og sameinaði án neins vesens, skuldabréfin að upphæð 1.000.000 kr sem þó greiðast sem 2.000.000 eftir 5 ára dreifingu. 100% vextir. En hvað er hægt að gera?

En ég er búin að gera alt, tala við alla og hlusta á alla. Síðustu 3 mánuði hef ég fengið útborgað um eða undur 150.000 kr fyrir 130% vinnu hjá Hrafnistu. Vinn þar myrkranna á milli.

Nú eru málin þannig að í Ísland í dag er sýnd fétt undir nafninu "Víst er til fólk sem til er að vinna við ummönnun aldraða við núverandi launakjör" Síðan er sýndar myndir af útlendingum að rembast við að læra að segja, "Viltu meira?" "Búa um rúm" og fl. Ég hef ekkert á móti að vinna með útlenskum ríksborgurum en fyrirsögnin var nirðandi! Það er líka því miður þannig að útlenskir ríkisborgarar eru strax settir á lægstu launataxta og þeir hafa ekki þekkinguna eða reynsluna af Íslenskum vinnumarkaði til að heimta betri kjör og því haldast kjörin í þeim skorðum sem þau hafa fests í. Engum til góðs og als engum til sóma!

 Nú standa því málin þannig að hér er ekki lengur viðunandi fyrir ungt par með barn að búa. Hér er ekki hægt að fá laun sem samsvara rekstri fjölskildu. Launin hækka ekki, en reikningarnir hækka, rekstur bíls hækkar og hækkar. Og það er ómögulegt fyrir okkur að punka út fyrir íbúð. Á endanum er það bara að enda á götunni...

Ég er búin að banka á allar dyr. En eins og ég hef sagt svo oft áður, ég vil ekki neina ölmusa heldur pláss til að geta andað og bjargað mér og lifa eðlilega. Þó ég sé stoltur Íslendingur og hafi ætlað mér að búa hér þá liggur leiðin bara út. Nú er stefnan næstu mánuði, að ég og mín fjölskylda ásamt systur minni sem nú er að klára meðgönguna sína, förum að undibúa að fullu flutning til Danmörku, Aarhus Trige, þar sem komið er til móts við unga foreldra og námsmenn að einhverju leiti sem þó er margfalt meira en gert er hér.

Ég mun leifa ykkur að fylgjast náið með framvindun mála en vil nú nýta tækifærið og þakka eftirfarandi fólki fyrir tíma sinn og athygli á málefninu sem ég set hér fram. Og vil koma hér að, að ég hef ekki enn náð athygli félagsmálaráðherra þrátt fyrir margar tilraunir.

Kolbrún Halldórsdóttir

Geir H. Haarde 

Björn Bjarnarson 

og Sérstakar þakkir til Ögmundar Jónassonar

 

Þetta er ekki bara lífið mitt heldur svo margra annara. Hér er ekkert væl í gangi heldur aðeins úrklippa úr daglegur lífi einstaklings í Bezta landi í heimi.
 


Útsýnið er bjartast frá botninum!

Jæja, ég skoðaði aðeins atvinnuauglýsingar í gær. Ég starfaði áður sem yfirmaður í verslun og hefði kannski aldrei átt að fara þaðan. Þar hafði enginn örugga vinnu, starfsmönnum var sagt upp í hverjum mánuði, yfirmenn fengu að fjúka með dags fyrirvara og útborguð laun. Ástæðan var einungis að yfirmenn höfðu unnið sig hratt upp í of launaðar stöður og, eða það átti að fækka í verslunum því búið var að græða á öllum öðrum leiðum. Eftir að 3 yfirmenn höfðu fengið að fjúka af þessum sömu ástæðum á stuttum tíma í kringum mig ákvað ég að leita að nýrri vinnu. Ég var bundinn samkvæmt samningi að vinna allar þær stundir sem ekki tókst að manna sem er afskaplega algengt, því var ég oft á tíðum á vakt frá 07.00 fram til miðnættis. Þetta þótti algengt.

Ég hef heyrt í umræðunni að dvalarheimili fyrir aldraða ráði viljandi ekki sjúkraliða í umönunn, segjast hafa samband eftir helgi en ekkert heyrist frá dvalarheimilununum aftur. Er þetta sagt algengt þó ég hafi ekki orðið persónulega uppvís að slíku. kemur mér þetta ótrúlega á óvart miðað við þá vöntun sem er á dvalarheimilum og að lítið er um umsóknir. Oft hefur þurft að hætta við baðdaga og margar skemmtanir vegna manneklu.

En nú er komið að því að ég víki frá minni vinnu á dvalarheimilu. Annar verður að bera ykkur söguna þaðan. Húshaldið bíður ekki upp á slík laun. Ég þarf að gera það upp við mig hvort ég segi frá ákvörðun minni í dag eða á morgun, ég læt ykkur vita.

Það góða er að frétta að nokkrir yfirmenn þjóðarinnar hafa sent mér bréf. Nokkrir ráðherrar og þar með talið forsetisráðherra. Ögmundur Jónason fékk af láni nokkra línur hér á síðuna sína www.ogmundur.is og á þökk skilið. Þetta er þörf umræða. Stór og mikil. Ég held að Íslendingar séu að vakna. Að minnsta kosti þeir yngri, það er óþægileg innilokunarkennd sem Íslenskt ungt fólk, foreldrar og aðrir finna fyrir á hverjum degi.

Ég læt heyra frá mér

Þetta er ekki bara lífið mitt heldur svo margra annara. Hér er ekkert væl í gangi heldur aðeins úrklippa úr daglegur lífi einstaklings í Bezta landi í heimi.


Alþingismenn láta í ljós skoðun sína af bloggskrifum Best í Heimi

Í gærkveldi settumst við nokkur saman niður og borðuðum frábært lasagne. Fljótlega barst samtalið út í ástandið á leigumarkaðinum og allt það. Umræðan fór mjög alvarlega í mig enda mikið í húfi. Sem betur fer er veðrið svo frábært að maður vaknar í góðu skapi.

Í gær skoðuðum við líka leiguíbúðir í Árhúsum í Danmörku, 90fm íbúðir 2-3 herbergja eru á 70.000isl.kr. Í dag erum við í ódýrustu íbúðinni sem við fundum, 55fm á 90.000 kr. Þetta er brjálaður munur! Fyrirframm greiðslan úti fyrir 70fm íbúð er á bilinu 80.000-90.000 kr þegar hún er hér 360.000 kr! Sjáið þið muninn!

Ef ég gæti lifað hér í þokkalegu ástandi með barn og verið ungur þá flott, það væri best! 

Í gærkveldi sendi ég mörgum útvöldum Alþingismönnum bréf og hvatti þá til að kynna sér aðstæðurnar sem ég lýsi hér á blogginu. Nú er að sjá hvernig viðbrögð fást og svo alltaf spurning hvort viðbrögðin og loforðin standist svo tímann, ég hef þegar fengið nokkur svör og við skulum sjá hvernig þetta þróast að sinni. Ég læt ykkur vita hvernig svörun ég fæ á réttum tíma.

Fylgist með frammvindun þessara mála, þetta er mikið þarfarmál sérstaklega fyrir ungt fólk! Það er mikill stuðningur í heimsóknum ykkar.

Þetta er ekki bara lífið mitt heldur svo margra annara. Hér er ekkert væl í gangi heldur aðeins úrklippa úr daglegur lífi einstaklings í Bezta landi í heimi.


Af mínum 475.000 Kr átti ég að fá 24.880 Kr en fékk 0 Kr

475.000 greiddi ég út í fyrra í eitthvað sem ég veit ekki. Ég átti að fá það tilbaka, átti að njóta góðs af, en af þessum 475.000 kr fékk maki minn 24.880 kr tilbaka. Ég hef líklegast greitt út að lámarki 400.000 kr á ári, síðustu 10 ár sem samsvara 4 Milljónum króna! Hvar eru þessir peningar? Er ég að versla við svikamillu?

 Ég er að tala um skattpeninga mína?

Ég er hér ekki að byðja um ölmusa eða hjálp! Það allra besta og minn mesti draumur væri að vinna að mínu eigin góðæri. Umhverfið bíður ekki upp á það. Ef einstaklingur býr í því ástandi að geta búið heima hjá foreldrum með maka og barn og lagt til hliðar, ef einstaklingur býr í því ástandi að foreldrar geti lagt til milljón eða tvær til íbúðarkaupa eða annað, þá gott mál! Hér er staðan önnur og svoleis er staðan hjá þúsundum öðrum. Vextir bankanna eru ekki mannbjóðandi eða bíður upp á eina einustu skynsemi!

Ég hef lagt til hátt í milljón á hverju ári til skatts! Ég hef unnið þriðjung af minni vinnu og striti fyrir Ísland og íslensk þjóðfélag, ég vil fá það sem ég hef verið að vinna að!

Þegar ég kem með nýjan skattgreiðanda inn í heiminn, sem kemur til með að borga að lámarki 400.000 kr á ári í ríkið þá fáum við styrk upp á 24.880 kr! 

Ég get ekki annað en lifað á leigumarkaði því í byrjun höfðum við tvö ekki það sem þurfti til að fá veitt íbúðarlán, þ.e.a.s. Nægilega há laun á töluverðum tíma. Við höfðum ekki múraða foreldra bak við okkur. Við voru hrökkt út á leigumarkað sem enginn leið er að komast upp úr! ENGINN LEIÐ!

Samfélagið lítur gjarnan á þá sem fá bætur sem aumingja og vesalinga! Ég hef engan áhuga á að fá hjálp! Eða meira lán! Ég á inni hjá Íslenska ríkinu! Ég vann lítið síðasta skatta ár sökum þess að við áttum von á barni, þó borgaði ég 475.000 kr í skatt! Af þessu fæ ég 24.880 kr til baka, síðan borgum við sjálf læknishjálp, himinháar álagstaxta á bensín, fok dýran mat og barnaföt og þær fleiri milljónir sem við höfum lagt til handa Íslenska ríkinu saman, sjáum við ekki vott af!

Eins og ég sagði hér í fyrri færslu þá fær einstæður einstaklingur 73.000 kr! Er það þannig að við á mínu heimili þurfum að slíta sambúð til að plata úr skattpeningana okkar? Þarf að leika á kerfið í hvert sinn sem maður ætlar að kreista út nokkra eina krónur!? Og það af eigin skattpening! 

Hvað er að ske! Hvernig gat ég ekki verið jafn sár og uppgefin hér áður, hvernig gat ég ekki almennilega séð hvernig málin standa. Ég vil ekki hjálp, ég vil geta hreyft mig og safnað mér og skapað mitt góðæri. Hvernig stendur á því að ungu fólki tekkst ekki að eignast heimili? Hvert á það að fara? Hvert getur það farið? Eiga bara allir aðrir ríka foreldra? Ef ég næ að halda mér á þessu landi lengur, hvað verður um barnið mitt? Fer það sömu leið?

Þarf barnið mitt að tala dönsku, borða danskan mat og anda að sér dönsku lofti til að geta lifað mannsæmandi lífi? Hvar eru skattpeningarnir mínir?

Þetta er ekki bara lífið mitt heldur svo margra annara. Hér er ekkert væl í gangi heldur aðeins úrklippa úr daglegur lífi einstaklings í Bezta landi í heimi.


Dagmamma með hálfa milljón á mánuði!

Í gær fór ég líka með maka mínum að sækja um leikskóla. Á bæjarskrifstofunni tóku á móti okkur góðar og kurteisar stelpur sem vildu okkur bara gott. (Afhverju eru alltaf á eyðublöðum forráða maður #1 og forráðamaður #2 þegar um er að ræða sameiginlegt forræði?) Jæja, okkur var tjáð að barnið fengi fyrsta lagi vistun á leikskóla í haust en, enn væru biðlistar frá 2006 þannig mætti búast við að barnið fengi inn haustið 2009! Þá erum við búin að vera á biðlista í 1 og hálft ár og barnið 2 og hálfs árs gamalt! 

Það er sami misskilningur í gangi hjá forráðamönnum þjóðarinnar um barnavistunarheimili og aldraðraheimili, það vantar ekki pláss, bara á minni deild eru 3 herbergi laus, en gríðarleg mannekla! Enginn getur enst í slíku starfi, launin bjóða ekki upp á að einstaklingur sé sjálf- og fjárráða.

Við fengum líka í dag greiddar barnabætur, upphæð 24.880 kr. Það eru 9,6 bleyjupokar! upphæðin er ekki einusinni fyrir einum mánuði hjá dagmömmu eða mánuði á leikskóla. Þar sem við erum skráð í sambúð fáum við 50% lægri bætur, við getum ekki nákvæmlega vitað hvað við áttum að fá, þar sem skatturinn sagðist ekki meiga segja mér það (fyrri færsla) en samkvæmt gögnum sem ég hef hefur skatturinn tekið af mér rúmar 20.000 kr í vangoldna skatta sem ég vildi leiðrétta eins og fram kom í síðustu færslu. Í heild áttum við því að fá c.a. 44.880 kr í barnabætur sem jafngildir 1 og hálfum mánuði hjá dagmömmu eða leikskóla en útgreiddar bætur voru 24.880. Ef við skráum okkur úr sambúð fáum "við" 73.000 kr sem er allt annað líf! Við erum tvö og annað er heimavinnandi með barnið enda ungt að aldri. Hvað er hér verið að launa? Og er þetta eðlilegt? Finst þér það?

Skorturinn á dagmömmum er svo gríðarlegur að ég heyrði um eina sem tekur 90.000 kr fyrir hvert barn Á MÁNUÐI! Þegar vinkonan hringdi og brá við að heyra upphæðina sagði dagmamman "Jæja, ef þú getur ekki borgað þetta þá þarf ég að drífa mig, það er fólk að bíða eftir að komast að sem getur borgað þetta, vertu sæl!" 

Er þetta brandari!!!?? 

Ég er ekki að heimta neitt frá ríkinu af fyrra bragði! Ég hef bara verið að greiða milli 30.000 og 70.000 kr mánaðarlega frá 18 ára aldri til ríkisins og vill nú fá eitthvað fyrir mína aura! Menn hér á landi þurfa ekki að aðhyllast félagshyggjustjórn til að vilja heimtingu á endurgjaldi! Sé maður frjálshyggjumaður vill maður líka fá útskýringu hvert fé sem ég vinn fyrir ríkið fer og afhverju fæ ég ekki neitt til baka?! 

Fólk tuðar í manni að flytja til Danmerkur! "Þar er svo gott gert við unga foreldra!" "'Í Danmörku er svo vel hugsað um námsmenn, drífið ykkur bara" "Í Danmörku er svo gott leiguverð!"

Leiguverð á 70fm íbúð í Trige í Aarhus í Danmörku er kringum 65.000-75.000 með hita og rafmagni samanber á Íslandi er 70fm íbúð á 100.000-110.000 með hita og rafmagni þar á milli eru 35.000 kr og það þarf vart að taka það fram að verðlag á rafmagni og hita er margfallt hærra úti!

Ég er stoltur Íslendingur, stoltur af Reykjavík, ótrúlega falleg sérstaklega í dag! Stoltur af sögunni og hreina og tæra landinu okkar! En ég get ómögulega verið að halda því uppi! Ég vildi mest af öllu í heimi að barnið mitt alist upp á Íslandi, sem Íslendingur! En hvað á ég að gera! Ég þarf að vinna, tæpur helmingur launanna fer svo í skatt sem ég sé ekki aftur! Það er virkilega verið að gera manni erfitt fyrir að vera heima á landinu sínu. Kannski er komið að því að landið sé nú helgað stórstjörnum, "Íslandsvinum" og bönkunum sem fjármálaráðherra hét í beinni útsendingu í gær að hann myndi gera allt sem í hans valdi er til að halda í hér á landi!

Hvað með mig? Ætlar fjármálaráðherra að gera allt sem í hans valdi stendur til að halda mér í þessu landi?

Þetta er ekki bara lífið mitt heldur svo margra annara. Hér er ekkert væl í gangi heldur aðeins úrklippa úr daglegur lífi einstaklings í Bezta landi í heimi.

 


Ég fékk 900 kr fyrir að ganga frá líki alltof ungs manns

Hér ætla ég ekki að væla, en ég ætla að láta heyra í mér! Fyrirsögnin er sönn! Meðan ég lagði ungan, eldri mann í stellingar áður en hann stirðnaði upp, lokaði útgangsopum og hagræddi líkinu á virðingalegan og snyrtilegan hátt fyrir aðstandendur, hellti svo upp á kaffi og sprittaði mig, fékk ég kringum 2/3 af launum 15 ára strák pjatta sem afgreiddi mjólk, 2 skyrdollur, 2L Coke, hakk pakka og pasta fyrir 1200 kr og fékk sjálfur fyrir þetta verk greidd 1300 kr. Þessi pjatti kemur svo heim til mömmu og pabba sem pirra hann restina af deginum um druslugang og hávaða og leti, sem hann sleppur svo við þegar hann hoppar aftur á næturvakt.

Ég hinsvegar næ ekki að klára næturvaktina mína á réttum tíma, einn starfsmannana í  umönunni á dvalarheimilinu sem ég vinn hjá er veikur og því vantar nú 3 og ég vinn til hádeigis. Um mánaðar lok uppsker ég, fyrir óeigingjarna vinnu sem bæði er líkamleg og meiriháttar andlega erfið, laun útborguð sem samsvara 164.565 kr. Ég fer því miður ekki heim til mömmu og pabba!

Af mínum launum hefur verið tekið 57.534 kr til skatts, en persónuafsláttur minn ver mig að upphæð 34.034 kr. 

Hjá skattinum er svo skráð að þeir eigi inná hjá mér 80.000 kr fyrir síðasta skattaár. Ég reyndi að benda þeim á það að bensín skattarnir mínir dyggðu fyrir þeim gjöldum sem ég nýtti mér frá ríkinu, þ.e.a.s. götur landsins en annað hefði ég ekki fengið frá þeim, því ég greiði fullt gjald til lækna, bókasafna sem frítt er fyrir borgara annara norðurlanda.

Heyrðu, einn í mínum vinahóp benti mér á að ég gæti ekki bara samið um greiðslur hjá skattinum heldur líka fundið út hvar villan um ofgreidd laun væri. Vinur minn hefði nefnilega farið tveimur dögum fyrr og fengið að sjá hinn ranga launaseðil og leiðrétt hann. En annað kom upp á daginn hjá mér.

Tvær ungar stelpur sem voru í læri þarna hjá skattinum höfðu nú aldrei heyrt á þetta minnst og sögðu þetta svo bara í lagi þar sem þetta yrði og væri dregið frá barnabótunum sem ég ætti að fá 1 febrúar!

Ekki nýti ég mér mikið af ríkisfé, en nú á að draga af því eina litla sem ég fæ! EKKI NÓG MEÐ ÞAÐ. Ég spurði hvað yrði dregið mikið af og hvað yrði þá greitt?

VIÐ MEGUM EKKI SEGJA ÞÉR ÞAÐ!

HA?!

Já þær máttu ekki segja mér hvað yrði dregið af mínum barnabótum til að borga upp mína skuld!

Jæja af mínum 164.565 kr sem ég fékk greidd sem laun fyrir vinnu mína, fara fyrst 90.000 kr í leigu, því ég hef ekki efni á að kaupa vegna þess að ég verð að hafa mannsæmandi laun í 3 mánuði til að fá lán frá einkaaðila til að geta veitt mér grunnþörf okkar manna. 164.565 kr eru ekki mannsæmandi! Jæja, eftir standa þá 74.565 kr. Ég þarf svo að greiða 18.367 kr sem er skuldabréfsgreiðsla fyrir láni sem ég tók fyrir fyrirframgreiðslu á íbúðinni sem samsvaraði 3 mánuðum og fyrsta mánuði eða = 360.000 kr. Og 8.752 kr sem er önnur skuldabréfsgreiðsla. Eftir standa þá 47.446 kr. Þá er það bifreiðagjöldin fyrir vegum landsins um 9.000 kr. 11.000 kr fyrir bílaláninu. Eftir af laununum standa 27.446 kr og höfðum við planað skötuhjúin að annað okkar færi í fjarnám þar sem barn er á heimilinu en það kostar 30.000 kr hjá Verslunarskólanum og er ódýrast þar. Til brúgs þennan mánuð eru því -2.554kr. Vel sloppið fyrir þennan mánuð. Sem betur fer fáum við einhverjar barnabætur og svo er biðin eftir húsaleigubótum næsta mánuð.

Í dag tók ég frí í vinnunni til að leita að annarri vinnu, mér líkar mín vinna, en hef ekki efni á henni. Í dag sjáum við á mínu heimili fyrir fjölskyldu. Ég ætti kannski að fara vinna í 10-11?

 

Þetta er ekki bara lífið mitt heldur svo margra annara. Hér er ekkert væl í gangi heldur aðeins úrklippa úr daglegur lífi einstaklings í Bezta landi í heimi.


Um bloggið

Íslendingur

Höfundur

Íslendingur
Íslendingur
Einstaklingur er íbúi besta lands í heimi og er bara rétt að reyna að komast af.
Jan. 2012
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.1.): 0
  • Sl. sólarhring: 0
  • Sl. viku: 4
  • Frá upphafi: 2120

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband